Þín eigin sumarhúsalóð á einstökum stað
Fjallaland er sumarhúsabyggð í landi Leirubakka í Landsveit.
|
Sumarhúsalóðir með útsýni
Umhverfið er stórbrotið og fjallasýnin glæsileg:
Hekla gnæfir yfir og vel sést til Búrfells, Bjólfells, Tindfjalla og Tindfjallajökuls.
Mikið fuglalíf er í hrauninu og ekki spillir Ytri-Rangá umhverfinu; í senn ein fallegasta á landsins og ein aflahæsta laxveiðiáin.
Hekla gnæfir yfir og vel sést til Búrfells, Bjólfells, Tindfjalla og Tindfjallajökuls.
Mikið fuglalíf er í hrauninu og ekki spillir Ytri-Rangá umhverfinu; í senn ein fallegasta á landsins og ein aflahæsta laxveiðiáin.
Fjárfesting í einstakri náttúrufegurð
Fyrir fjölskyldur sem vilja eignast sína eigin sumarhúsalóð og fjölga dýrmætum samverustundum.
Fullkominn kostur fyrir þau sem vilja vinna í fjarvinnu í nýju umhverfi.
Einstök náttúrufegurð með ótakmarkaða möguleika til hvers kyns útivistar með fjölskyldunni.
Fullkominn kostur fyrir þau sem vilja vinna í fjarvinnu í nýju umhverfi.
Einstök náttúrufegurð með ótakmarkaða möguleika til hvers kyns útivistar með fjölskyldunni.
Hvernig kaupi ég sumarhúsalóð í Fjallalandi?
- Þú skráir netfangið í umsóknarforminu færð sendar allar helstu upplýsingar í tölvupósti
- Við finnum tíma sem hentar þér til að skoða svæðið. Þá getur þú metið umhverfið, landslagið og fjallahringinn með eigin augum og við finnum í sameiningu þína draumalóð
- Við finnum heppilegan tíma til ganga frá kaupsamningi og eftir það er lóðin þín.
Algengar spurningar
Hvað eru sumarhúsalóðirnar í Fjallalandi stórar?
Lóðirnar eru misstórar, en algengasta stærðin er 6.500 til 7.500 fermetrar. Einnig eru til stærri lóðir eða allt að 12.000 fermetrum, 1.2 hektari að stærð. Fyrir stórar fjölskyldur getur hentað að kaupa tvær eða fleiri samliggjandi lóðir Hvernig er frágángurinn á lóðinni þegar ég fæ hana afhenta? Við afhendingu er vegur eða götur lagðar að lóðunum og kalt vatn og rafmagn að lóðamörkum sem eigendur geta tengst þegar þeir hefja byggingaframkvæmdir. |
Hvað kosta sumarhúsalóðirnar?
Algengasta verð lóðanna er 4,3 til 4,8 milljónir króna en verðið hækkar eftir því sem lóðirnar eru stærri. Verðið á stærri lóðunum verið á milli 5,5 og 6,5 milljónir króna en stundum getur hentað betur að kaupa tvær eða fleiri samliggjandi lóðir. Eru einhver tímamörk um hvenær ég þarf að byggja hús á lóðinni? Nei, engar kvaðir eða tímamörk eru um hvenær kaupendur skulu byggja hús á lóðunum. Það er misjafnt hvað hentar hverjum og einum og sumir byrja á að koma upp litlu húsi áður en hafist er handa við framtíðarbústaðinn. |
Minna stress og meiri tími með vinafólkinuÞar sem aðeins er um klukkustundar akstur frá höfuðborgarsvæðinu er gaman að bjóða vinafólkinu í heimsókn í nýja bústaðinn. Það er vel þekkt að fólk slakar betur á þegar það er komið út fyrir borgarmörkin og samverustundirnar verða öðruvísi.
Náttúran á þessum slóðum er einstök. Í Fjallalandi er staðviðrasamt og oft mjög hlýtt á sumrin, enda er orðið mjög langt til sjávar. |
Skipulag FjallalandsSkipulag Fjallalands miðar allt að því að sumarhúsabyggðin falli sem best að landinu. Þar eiga allir íbúar að geta verið í næði og búið að sínu, en um leið verður séð fyrir öllum nútíma þægindum, svo sem góðum vegasamgöngum.
Síðast en ekki síst er hægt að sækja þjónustu heim að staðnum á Leirubakka. Þar er til dæmis rekið hótel og veitingahús og útleiga á sölum til samkomuhalds. |